Skip to content

Sími: +354 660-3890

SKilmálar TJG ehf.

Tilboðið gildir í 15 daga frá dagsetningu þess og miðast við afhendingu hjá flutningsaðila (Eimskip/Samskip) í Reykjavík.

Reiknað er miðað við sölugengi evru hjá Arionbanka á útgáfudegi tilboðsins. Ef gengi íslensku krónunnar veikist um meira en 2% gagnvart evru, áskilur TJG ehf. sér rétt til að endurreikna tilboðið miðað við gengi á dagsetningu afhendingar.

Kvörtun vegna galla verður að berast skriflega innan 3 virkra daga frá afhendingu. Tilboðið nær aðeins til þess sem kemur skýrt fram á framleiðsluteikningum viðkomandi framleiðanda.

Samningur telst gildur þegar greidd hefur verið 50% staðfestingargreiðsla af heildarupphæð. Eftirstöðvar skulu greiðast fyrir afhendingu, nema um annað hafi verið sérstaklega samið.

Vörur TJG eru sérpantanir og fást ekki skilað eftir afhendingu. Það er á ábyrgð kaupanda að yfirfara tilboð og teikningar til að staðfesta að varan uppfylli kröfur, málsetningar séu réttar ásamt lit og öðrum eiginleikum. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt falli viðskiptavinur frá kaupum eftir að það er greitt.

Geymslugjald tekur gildi 7 dögum eftir tilkynningu um komu vöru á lager. Geymslugjald er 2.500 krónur á dag fyrir hvert bretti.

Gámaleiga á 40 feta gámi reiknast 22.400.- kr á dag

Hringhamar 21-25 - Hús og Jörð(1)

TJG er traustur samstarfsaðili í byggingarferlinu – með lausnir sem standast bæði tímans tönn og íslenskar aðstæður.

Samstarfsaðilar Hjá TJG ehf. leggjum við mikla áherslu á að vinna eingöngu með traustum og viðurkenndum samstarfsaðilum. Við eigum í nánu sambandi við leiðandi gluggaframleiðendur í Evrópu sem sameina háþróaða tækni, gæðavottanir og áralanga reynslu.Með slíkum samstarfsaðilum getum við boðið lausnir sem standast kröfur bæði fagfólks og verkefna með hárri tæknilegri og fagurfræðilegri ábyrgð. Áreiðanleiki í framleiðslu og afhendingu er lykilatriði í samstarfi okkar, sem gerir okkur kleift að tryggja stöðug gæði og framúrskarandi þjónustu í hverju einasta verkefni.

Hafðu samband

Jón Örn Arnarson/CEO
Sími: +354 660-3890